Aukin greiðsluþátttaka SÍ

28 maj 2019

Þau gleðilegu tíðindi bárust í lok maí að heilbrigðisráðherra hefur sett reglugerð sem kveður á um aukna greiðsluþátttöku sjúkratrygginga í kostnaði þeirra sem fara í tæknifrjóvgun.

Reglugerðin tók gildi 31.05.2019 og breytingarnar eru eftirfarandi:

  • Hlutdeild sjúkratrygginga hækkar í 65% vegna annarrar meðferðar í glasa- eða smásjárfrjóvgun.
  • Fyrir þriðju og fjórðu meðferð í glasa- eða smásjárfrjóvgun verður greiðsluþátttaka sjúkratrygginga 65%.
  • Hlutdeild sjúkratrygginga vegna fyrstu meðferðar í glasa- eða smásjárfrjóvgun hækkar úr 5% í 65% ef um er að ræða ófrjósemisvandamál vegna lyfjameðferðar, geislameðferðar eða beinmergsflutnings. Hjá öðrum verður greiðsluþátttakan óbreytt.
  • Sjúkratryggingar munu eftir reglugerðarbreytinguna taka þátt í kostnaði við frystingu á fósturvísum ef um er að ræða ófrjósemisvandamál vegna lyfjameðferðar, geislameðferðar eða beinmergsflutnings.

Upphaflegu reglugerðina má nálgast á vef stjórnartíðinda hér og þessar nýtilkomnu breytingarnar á henni hér.